Kardimommur heilar 35 gr (6)

Kryddhúsið
Vörunúmer: KRYDD-56 Flokkur: Brand:

Lýsing

KARDIMOMMUR HEILAR 35 GR (6)

Innihald: heilar kardamommur.

Ilmar og bragðast dásamlega. Gefur mjúkt, aromatískt sætt bragð. Notað til að bragðbæta salta og sæta rétti. Klassískt krydd í indversku og arabísku eldhúsi. Gott að bragðbæta te, kaffi og hvers kyns heita drykki með kardamommum.

Í sumum Miðausturlöndum eru heilar kardamommur steyttar með möluðum kaffibaunum í morteli, í hlutföllunum ⅖ kardemommur á móti ⅗  kaffi og svo er hellt upp á kardemommukaffi!

Í náttúrulækningum þykja kardamommur bakteríudrepandi og sótthreinsandi með meiru. Gott er að tyggja eins og eitt eða tvö fræ af kardemommu og kyngja munnvatninu og fræjunum til að vinna bug á andremmu.

Kardamommur eru í þriðja sæti á lista yfir dýrustu krydd heimsins, miðað við þyngd, á eftir saffron og vanillu.

Kryddið er Vegan, án aukaefna, án MSG, án glúteins, án sílikon díoxíðs, án salts.