Skilmálar og skilyrði
Upplýsingar um fyrirtækið
John Lindsay hf.
Klettagörðum 23, 104 Reykjavík
S: 533 2600
lindsay.is,
lindsay@lindsay.is
John Lindsay hf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag ef pöntun fer fram fyrir kl. 14 daginn áður. Kaupendur munu fá staðfestingu á tíma til að sækja vörur eða sendingartíma. Vörur sem ekki eru til á lager eiga að vera ófáanlegar í vefverslun. Sé vara pöntuð sem ekki er til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Vinsamlegast athugið að allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Birgðastaða og verð eru uppfærð einu sinni á dag og möguleiki á misræmi er til staðar sem ekki er hægt að taka ábyrgð á. Þannig geta verð breyst eftir uppfærslur t.d. vegna nýrra birgða á lager.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Uppfylli vara ekki kröfur kaupanda er velkomið að hafa samband við John Lindsay hf, upplýsa um ástæður og fá úr því bætt. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti. Sendingakostnaður fer eftir upphæð og samningum milli viðskiptaaðila.
Greiðsluleiðir
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi með:
- Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu SaltPay sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.
- Sett í reikning: Viðskiptamaður er í reikningsviðskiptum við John Lindsay og pantanir eru settar á reikning fyrir hvern mánuð.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur
Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 1. júní 2022