Pottagaldrar


Pottagaldrar hafa kryddað íslenska matargerð frá árinu 1989. Fyrirtækið var stofnað af Sigfríði Þórisdóttur og byrjaði smátt með aðeins fjórar kryddblöndur. Síðan þá hefur úrvalið vaxið jafnt og þétt og í dag telur vörulínan um 100 vörutegundir.

Pottagaldrar sérhæfa sig í kryddblöndum, almennu kryddi og kryddolíum með það að markmiði að gera matargerð fjölbreyttari, bragðmeiri og einfaldari. Í úrvalinu má finna krydd fyrir allt frá hversdagsmatnum yfir í grillið og veisluborðið, ásamt blöndum innblásnum af ólíkum matarhefðum víðs vegar að úr heiminum.

Í meira en þrjá áratugi hafa Pottagaldrar lagt áherslu á fjölbreytta kryddnotkun og að sýna hversu miklu góð krydd geta breytt í matargerðinni. Vörurnar fást í helstu matvöruverslunum landsins og úrvalið þjónar bæði heimilum og fagfólki í matargerð.