Sellerí fræ Möluð 5kg 10L fata

Kryddhúsið
Vörunúmer: HK719 Flokkur: Brand:

Lýsing

SELLERÍ FRÆ MÖLUÐ 5KG 10L FATA

Innhald: sellerý fræ.

Fræin eru ávöxtur sellerý plöntunnar. Sellerý fræ eru mikið notuð í kryddblöndur, kryddlegi og saltpækla til að súrsa t.d. grænmeti. Gott að strá sellerýfræum út á hrásalat, góð á hvers kyns grænmeti og í súpur. Sellerýsalt þar sem sellerýfræin eru mulin saman við salt er notað í áfenga drykkinn Bloody Mary.

Sellerý er einstaklega holl fæða og er notuð í Ayurveda-fræðunum vegna eiginleika sinna til að vinna á bólgum og bakteríusýkingum, lækka blóðþrýsting, gegn bjúgmyndun, vinna á meltingarvandamálum og liðagigt og þykja verkjastillandi.

Kryddið er vegan, án aukaefna, án MSG, án glúteins, án silikon díoxíðs, án salts.

Kryddið geymist best á þurrum stað, fjarri sólarljósi og líftíminn er 2 ár.