Lýsing
Innihald: Þurrkuð paprika sem búið er að reykja.
Paprikan er sólþurrkuð og reykt undir berum himni eða þar til gerðum ofnum, með greinum af jurtum sem gefa henni einstakt reykt bragð. Hún er ljúffeng í hvers kyns kjöt- og grænmetisrétti, frábær í chili con carne og einnig er frískandi og skemmtilegt að blanda henni saman við sýrðan rjóma sem ídýfukrydd eða kalda sósu.
Kryddið er vegan, án aukaefna, án MSG, án glúteins, án silikon díoxíðs, án salts.
Kryddið geymist best á þurrum stað, fjarri sólarljósi og líftíminn er 2 ár.