Lýsing
Innihald: Allrahanda (heil ber)
Allrahanda er einnig þekkt sem Pimento pepper og Jamaican pepper. Allrahanda eru ljúffeng ber sem eru þurrkuð og þau draga nafn sitt af því að þau bragðast eins og kanill, engifer, negull og fleiri vermandi og ljúffeng krydd og allt í senn. Þessi ber eru sérlega góð í alls kyns pottrétti og marineringar og jafnvel í bakstur.
Kryddið er vegan, án allra aukaefna, án MSG, án glúteins, án silikon díoxíðs, án salts.
Kryddið geymist best á þurrum stað, fjarri sólarljósi og líftíminn er 2 ár.