Lýsing
JORDAN GREEN CLEAN STEP 1 0-2 ÁRA (8)
Jordan Step 1 – Hvert smáatriði skiptir máli
Litlar tennur, stórt hlutverk!
Fyrstu tennurnar eiga skilið sérstaka umhirðu. Jordan Step 1 tannburstinn er sérstaklega hannaður með þarfir ungbarna í huga, þar sem hvert smáatriði hefur sinn tilgang.
-
Extra mjúk tannburstahár – Sérstaklega hönnuð til að hreinsa fyrstu tennurnar á mildan hátt og fara vel með viðkvæmt tannhold ungbarna.
-
Rétt magn af tannkremi – Litaðar doppur í tannburstahárunum hjálpa foreldrum að átta sig á hversu mikið tannkrem á að nota og draga þannig úr hættu á að barnið gleypi of mikið flúor.
-
Stuttur háls fyrir aukið öryggi – Hönnun tannburstans hjálpar til við að draga úr hættu á að hann fari of langt inn í munn barnsins, til dæmis ef barnið hreyfir höfuðið skyndilega.
-
Handfang með tvöfalt hlutverk – Sérhannað handfang sem auðvelt er fyrir litlar hendur að grípa um og nýtist jafnframt sem naghringur.
Jordan Step 1 – því góð tannhirða byrjar með fyrstu tönninni.












