Vanillukaka með saltkaramellu uppskrift
Kaka uppskrift
- 1 x Betty Crocker vanilla kökuduft
- 1 x Royal vanillubúðingur
- 4 egg
- 100 ml matarolía
- 200 ml vatn
- Hitið ofninn í 160° og hrærið eggjum, olíu og vatni saman.
- Bætið kökuduftinu saman við og hrærið í nokkrar mínútur, þá má bæta búðingsduftinu við og blanda stutta stund til viðbótar.
- Skiptið niður í 3 x 15 cm kökuform sem búið er að spreya vel að innan með matarolíuspreyi.
- Bakið í um 25 mínútur eða þar til þið sjáið að kantarnir losna örlítið frá forminu efst, kælið.
Saltkaramella uppskrift
- 360 g sykur
- 130 g smjör við stofuhita
- 120 ml rjómi
- 2 tsk. sjávarsalt
- Hellið sykrinum á pönnu og hitið við háan hita þar til hann fer að kristallast, hrærið mjög reglulega.
- Þegar hann byrjar að bráðna má lækka hitann í meðalháan og hræra áfram þar til sykurinn er uppleystur.
- Þá má bæta smjörinu á pönnuna og hræra vel og því næst rjómanum og hræra þar til samfelld karamella hefur myndast. Hér er saltinu síðan hrært saman við.
- Takið af hitanum og hellið í skál, leyfið að kólna áður en notað með kreminu.
Vanillukrem uppskrift
- 180 g smjör við stofuhita
- 680 g flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 150 ml rjómi
- Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.
- Bætið flórsykri, vanillusykri og rjóma saman við í nokkrum skömmtum.
- Skafið vel niður á milli og hrærið þar til létt krem hefur myndast.
Samsetning
- Skerið aðeins ofan af öllum kökubotnunum og smyrjið um ½ sm þykku lagi af smjörkremi ofan á neðsta botninn og því næst smjörkremsvegg með hringlaga stút yst á botninn (þetta gert til þess að karamellan leki ekki út). Fyllið upp í með saltkaramellu.
- Leggið botn númer 2 ofan á og endurtakið og lokið síðan með þriðja botninum og kælið kökuna í um 30 mínútur.
- Hjúpið næst alla kökuna með þunnu lagi af smjörkremi og kælið aftur í um 10 mínútur.
- Þá má setja lokaumferð af kremi á kökuna sem er um 1 sm þykkt smjörkremslag. Áður en þið sléttið úr kreminu má setja smá af karamellu hér og þar með skeið/hníf og draga með kreminu þegar það er sléttað með kökuspaða. Að lokum smá strá smá grófu salti efst á kökuna og best er að geyma hana í kæli.
Uppskrift frá Gotterí og gersemar: Vanillukaka með saltkaramellu – Gotterí og gersemar (gotteri.is)