Karamellubúðingur í sparifötunum
Uppskrift dugar í um 6 glös
Botn
- 200 g Lu Bastogne Duo kex
- 30 g brætt smjör
- Setjið kexið í blandarann og myljið niður í duft.
- Blandið bræddu smjöri saman við, leggið til hliðar.
Karamellubúðingur
- 1 pakki Royal karamellubúðingur
- 250 ml rjómi
- 250 ml mjólk
- Pískið búðingsduftið saman við mjólk og rjóma, geymið í skálinni og setjið síðan saman (sjá neðar).
Annað hráefni og samsetning
- 300 ml þeyttur rjómi
- Karamellusósa (tilbúin heit íssósa í flösku)
- Blóm sé þess óskað
- Setjið um eina matskeið af kexi í botninn á glasinu.
- Skiptið næst búðingnum á milli glasanna.
- Hellið smá karamellusósu yfir og setjið smá meiri kexmylsnu.
- Skiptið næst rjómanum niður í glösin og setjið aftur karamellusósu og smá kexmylsnu, toppið með blómum sé þess óskað.
- Best er að geyma eftirréttinn í kæli í að minnsta kosti 30 mínútur áður en hann er borinn fram.
Uppskrift frá Gotterí og gersemar: Karamellubúðingur í sparifötunum – Gotterí og gersemar (gotteri.is)