Þristakökur uppskrift
Uppskriftin gefur um 20 bollakökur
Bollakökur uppskrift
- 1 x Betty Crocker Devils Food Cake Mix
- 130 ml matarolía
- 250 ml vatn
- 4 egg
- 3 msk. bökunarkakó
- 1 x Royal súkkulaðibúðingur (duftið)
- 250 g niðurskornir Þristar
- Hitið ofninn í 160°C.
- Hrærið saman egg, olíu og vatn.
- Bætið kökudufti saman við og hrærið í um 2 mínútur, skafið niður á milli.
- Setjið næst búðingsduftið saman við og hrærið stutta stund saman við deigið.
- Að lokum fer niðurskorinn Þristur út í deigið og þá er því skipt niður í um 20 bollakökuform.
- Bakið í 20-25 mínútur og leyfið að kólna áður en kreminu er smurt á.
Þristakrem uppskrift
- 150 g niðurskornir Þristar (+ meira til skrauts)
- 70 g smjör við stofuhita
- 250 g flórsykur
- 3 msk. maple sýróp
- Skerið Þristana smátt niður og bræðið í örbylgjuofni. Gott er að setja þá í 20-30 sekúndur í senn við meðalháan hita og hræra í þeim á milli. Að lokum verður blandan eins og þykk/stíf karamella. Leyfið hitanum að rjúka vel úr áður en þið hrærið síðan saman við smjörið.
- Þeytið þá smjör og Þristablöndu saman, bætið flórsykri og sýrópi saman við í skömmtum og skafið niður á milli.
- Smyrjið vænu lagi af kremi á hverja bollaköku og stráið niðurskornum Þristi yfir allt saman.
Uppskrift frá Gotterí og gersemar: Þristakökur – Gotterí og gersemar (gotteri.is)