Skip to main content

Súkkulaðibitakökur – 20 stk –

230 g smjör, við stofuhita
50 g sykur
150 g púðursykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
250 g hveiti
1 tsk matarsódi
1 pk vanillubúðingur frá Royal
100 g súkkulaðiperlur
100 g hvítt súkkulaði

Hitið ofn í 180°c. Hrærið saman smjör, sykur og púðursykur í 2-3 mín, gott að skafa meðfram hliðunum 1-2 svo smjörið festi sig ekki við hliðarnar. Bætið þá eggjunum saman við einu í einu og hrærið þangað til létt og ljóst.

Bætið þá vanilludropum, hveiti, matarsóda og búðingsduftinu saman við og hrærið varlega saman. Skerið súkkulaðið niður í bita, ekki of smátt. Hellið þá súkkulaðinu saman við deigið og hrærið því saman við með sleikju.

Takið bökunarpappírs klædda plötu og skiptið deiginu niður með matskeiðum. Ég vigta mínar kökur og er hver kaka u.þb. 50 grömm. Gott er að taka nokkrar súkkulaðiperlur og setja ofan á hverja kúlu, gerir útlitið á þeim aðeins skemmtilegra.

Bakið kökurnar í 10-12 mín. Ég vill mínar kökur mjúkar í miðjunni og er að baka þær í 10 mín meðan aðrir á mínu heimili vilja þær aðeins meira bakaðar þá hef ég þær inni í 12 mín.

 

Uppskrift frá Döðlur og smjör: Súkkulaðibitakökur með perlum & hvítu súkkulaði – Döðlur & smjör (dodlurogsmjor.is)