Skip to main content

Bollakökur

  • Betty Crocker Devils Food kökumix, egg, vatn og olía skv.leiðbeiningum
  • Súkkulaði Royal búðingur

Hrærið kökumixið samkvæmt leiðbeiningum á pakka og bætið búðingsduftinu saman við í lokin. Skiptið niður í um 22 bollakökuform, bakið og kælið á meðan kremið er útbúið.

Jarðaberjakrem

  • 160 gr smjör við stofuhita
  • 1 tsk vanilludropar
  • 750 gr flórsykur
  • 200 gr jarðaber (maukuð) í kremið
  • Jarðaber til skrauts
  1. Setjið smjör og vanilludropa í hrærivél og þeytið saman.
  2. Maukið jarðaberin í matvinnsluvél/blandara.
  3. Bætið flórsykrinum saman við smátt og smátt til skiptis við jarðaberjamaukið og skafið niður á milli.
  4. Hrærið þar til slétt og fellt, setjið þá í sprautupoka og skreytið kökurnar (ég notaðist við stút 1M frá Wilton í þessu tilviki)
  5. Skerið jarðaber til helminga og notið sem skraut.

 

Uppskrift frá Gotterí og gersemar: Súkkulaði bollakökur með jarðarberjakremi – Gotterí og gersemar (gotteri.is)