
Strawberry Cheesecake bolla (Jarðaberjaostakökubolla)

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki jarðarberja Royal Búðingur
- 1 Pakki af ostakremi frá Toro
- 1 dl og 125 gr Rjómaostur í sitthvoru lagi (eitt í rjómann á milli hitt í ostakremið)
- 1,5 dl rjómi
- 2,5 dl nýmjólk
- 50 gr smjör
- Jarðaberjasulta
- Fersk jarðaber
Aðferð
- Byrjið á að baka bollurnar eftir leiðbeiningum og kælið
- Setjið svo 1 dl af rjómaosti, 2,5 dl mjólk og 1,5 dl rjóma saman í skál og pískið vel saman eða notið handþeytara
- Setjið svo Royalbúðingin út í skálina og hrærið í eina mínútu með písk og setjið til hliðar
- Gerið svo kremið ofan á bolluna en í það er sett 1 pakki Ostekrem frá Toro, 50 gr mjúkt smjör og 125 gr rjómaostur og þeytt saman
- Skerið svo bollu í tvennt og setjið sultu og jarðaber á botninn
- Setjið svo Royalbúðing ofan á og lokið
- Setjið svo ostakrem ofan á toppinn og leyfið að standa í kæli í eins og korter (ekki samt skylda bara betra)
Cinnabon bolla (Amerískir Kanelsnúðabolla)

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki vanillu Royal Búðingur
- 1 pakki Toro ostekrem
- 125 gr rjómaostur
- 50 gr smjör
- 2,5 dl rjómi
- 2,5 dl nýmjólk
- 2 msk og 1/ 2 bolli púðursykur (í sitthvoru lagi)
- 40 gr smjör
- 1 msk kanill og 1 tsk (í sitthvoru lagi)
- 2 msk flórsykur
Aðferð
- Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum
- Í rjómakremið á milli er sett 2,5 dl mjólk og 2,5 dl rjómi, 2 msk flórsykur, 1 tsk kanill og 2 msk púðursykur
- Þessu er hrært saman með písk og vanillubúðing hrært saman við og pískað saman í 1 mínútu. Leggið svo til hliðar
- Svo er kanilbráð búin til úr 40 gr af smjöri, 1 msk kanil og 1/2 bolla af púðursykri sem er brætt í potti saman
- Gerið svo Rjómaostakremið ofan á með 50 gr mjúku smjöri,125 gr rjómost sett í 1 pakka af Toro ostakremi
- Nú er svo að setja bolluna saman en þá er sett kanilbráð á botninn
- Kanilrjómi ofan á og bollunni lokað
- Svo er ostakremið sett ofan á toppinn
Berlínarbolla

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki vanillu Royal Búðingur
- Hindberjasulta
- 2,5 dl nýmjólk
- 2,5 dl rjómi
- Flórsykur
Aðferð
- Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum
- Gerið svo vanillubúðing með 1 pakka búðing, 2,5 dl rjóma og 2,5 dl nýmjólk
- Setjið svo hindberjasultu á botninn og vanillubúðing ofan á
- Lokið bollunni og stráið flórsykri yfir lokið með sigti
Súkkulaðibollur með saltri karamellu og pistasíuhnetum

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki karamellu Royal Búðingur
- 50 gr 70 % súkkulaði
- 2,5 dl nýmjólk
- 2,5 dl rjómi
- 1 tsk gróft salt og 1/2 tsk gróft salt (í sitthvoru lagi)
- 1 pakki rjómatöggur
- 1/2 dl rjómi
- Pistasíuhnetur án kjarna (saltar eða ósaltar)
Aðferð
- Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum og bætið við þær 50 gr af smátt skornu 70% súkkulaði
- Gerið svo saltkaramellubúðing með 1 pakka karamellubúðing 2,5 dl rjóma, 2,5 dl nýmjólk og 1 tsk af grófu salti og leggið til hliðar
- Bræðið svo rjómatöggur í potti með 1/2 dl rjóma og 1/2-1 tsk grófu salti
- Skerið svo bollurnar í tvennt og setjið karamellu og muldar ppsitasíuhnetur á botninn
- Setjið svo saltkaramellubúðing ofan á og lokið bollunni
- Toppið svo með saltkaramellu og muldum pistasíuhnetum
Krakkabollur

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki súkkulaði Royal Búðingur
- 1/2 dl súkkulaðispænir
- Sulta með uppáhaldsbragði barnanna
- 2,5 dl nýmjólk
- 2,5 dl rjómi
- 3 dl flórsykur
- vatn
- bleikur matarlitur
- kökuskraut
Aðferð
- Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum
- Gerið svo súkkulaðibúðing með 1 pakka súkkulaðibúðing, 2,5 dl rjóma, 2,5 dl nýmjólk og 1/2 dl súkkulaðispænum
- Setjið svo sultu á botninn og súkkulaðibúðing ofan á
- Gerið glassúr úr 3 dl flórsykri og setjið vatn þar til hann verður þykkur eins og þið viljið
- Litið með matarlit
- Lokið bollunni og toppið með glassúr og kökuskrauti
Sítrónu og bláberjabolla

- Einn pakki af Toro Hveteboller dufti, bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á pakka
- 1 pakki Royal sítrónu búðingur
- 2,5 dl nýmjólk
- 2,5 dl rjómi
- 1 pakki Toro ostakrem
- 50 gr smjör
- 125 gr rjómaostur
- 1 tsk sítrónusafi
- 1 msk rifinn sítrónubörkur
- Bláberjasulta
- Bláber fersk
Aðferð
- Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum
- Gerið svo sítrónubúðing með 1 pakka sítrónubúðing, 2,5 dl rjóma, 2,5 dl nýmjólk og 1 tsk sítrónusafa
- Gerið svo Rjómaostakremið ofan á með 50 gr mjúku smjöri,125 gr rjómost sett í 1 pakka af Toro ostakremi
- Skerið svo bollurnar í tvennt og setjið á botninn bláberjasultu og fersk bláber
- Setjið svo búðingin ofan á og lokið bollunni
- Toppið með ostakreminu og setjið sítrónubörk yfir kremið

Uppskrift frá Paz
