Skip to main content

Mjúk Mokka súkkulaðikaka

  • 1 pakki Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda Lindu Ben
  • 1 pakki Royal mokkabúðingur
  • 3 egg
  • 1 dl vatn
  • 1 1/2 dl bragðlítil olía

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið súkkulaði þurrefnablönduna frá Lindu Ben og royal búðinginn í skál ásamt eggjum, vatni og olíu í skál, hrærið saman í 2-3 mín og skiptið deiginu á milli tveggja smurðra 20 cm smelluforma.
  3. Bakið í 25 mín og kælið svo botnana.

Mokka krem

  • 300 g smjör
  • 300 g flórsykur
  • 100 ml rjómi
  • 1 msk kaffi
  • 1 msk kakó

Aðferð:

  • Þeytið smjör, kakó og fljórsykur saman þar til mjúkt, létt og ljóst.
  • Setjið rjómann og kaffið út í kremið, smá slettu í einu og þeytið vel á milli. Þeytið þar til orðið mjúkt og gott krem.
  • Setjið fyrsta botninn á kökudisk og smyrjið kremi á botninn, setjið seinni botninn yfir og hjúpið kreminu á kökuna. Gott er að skilja svolítið eftir af kreminu og setja í sprautupoka og sprauta því á endana á kökunni.

Mjúk Mokka súkkulaðikaka

Uppskrift frá Lindu Ben