
Fyrir 4 – tekur um 25 mínútur
Hráefni
- 1 pizzadeig
- 300 g hakkaður kjúklingur
- 1 hvítlauksrif, fínt saxað
- ½ rauð paprika, skorin smátt
- ½ græn paprika, skorin smátt
- 1 poki rifinn ostur
- fersk kóríanderlauf
- 165 ml grísk jógúrt (án bragðefna)
- Go Tan Sriracha sósa
- salt eftir smekk
- lime eða sítróna (valfrjálst)
Aðferð
- Hitaðu ofninn í 200°C.
- Rúllaðu pizzadeiginu út á bökunarplötu. Blandaðu saman 2 msk af Sriracha, kjúklingi og hvítlauk og dreifðu yfir botninn. Settu papriku og ost ofan á. Bakaðu í 12–18 mínútur, eða þar til kantarnir eru gullinbrúnir.
- Blandaðu saman kóríander, grískri jógúrt og 1 msk af Sriracha í skál. Saltaðu eftir smekk og kreistu hálft lime (eða sítrónu) út í fyrir meira bragð.
- Þegar pítsan er tilbúin, dreifðu kóríander–Sriracha sósunni yfir. Skreyttu með ferskum kóríander og mögulega söxuðum hnetum.
Uppskrift eftir Go Tan



