
Púrrulaukssósa:
- 1 dós sýrður rjómi
- 1/2 dl púrrulaukssúpu pakki frá Toro
Bearnaisesósa:
- 2 dl kotasæla
- 1 pakki Bearnaisesósu pakki frá Toro
- 2-3 dl mjólk (sósan verður þynnri með meiri mjólk)
Innihald í um 10-12 grillspjót:
- 1 kúrbítur
- 1 box sveppir
- 1 rauðlaukur
- 1 grillostur
- brokkolí (gott að gufusjóða það örlítið áður)
- paprika
Marinering:
- 1/4 bolli olía
- 2 msk balsamik edik
- 2 hvitlauksrif
- 1 msk dijon sinnep
- 1 msk pestó
- safi úr lime
- salt og pipar
- Rótargrænmetiskrydd frá Kryddhúsinu
Grænmetið skorið niður í hæfilega stóra bita, öllum innihaldsefnunum í marineringunni blandað saman og penslað á spjótin. Gott að láta þetta marinerast i um 1 klst fyrir eldun. Grillið við meðalhita í um 15 mínútur.

Uppskrift eftir Helgu Möggu


