Skip to main content
  • 1 pakki Meksikanske gryte frá Toro
  • 500 g nautahakk eða annað hakk
  • Litlar vefjur 17-20 stk
  • kóríander og sprettur – má sleppa
  • rifinn ostur
sósan:
  • sýrður rjómi
  • salsa sósa
Þú byrjar á því að steikja hakkið og blandar svo grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur. Á meðan er tilvalið að ná í vefjurnar. Þú getur annað hvort notað litlar vefjur eða skorið 4 vefjur út úr einni stórri (stærsta gerðin).
Þegar taco blandan er tilbúin er hafist handa við að útbúa hringinn. Ef þú ert að gera hringinn á ofnplötu er sniðugt að setja litla sósuskál eins og á myndinni í miðjuna og raða svo taco fylltum vefjum í kring um skálina, þá færðu fullkominn hring. Að lokum er ostur settur yfir vefjurnar og þetta hitað í um 5-10 mínútur við 180 gráður svo osturinn bráðni.
Á meðan er sósan útbúin en hún er gerð með því að blanda saman til helminga sýrðum rjóma og salsa sósu.
Þegar rétturinn er borinn fram er gaman að setja eitthvað grænt með, kóríander, sprettur eða klettasalat en því má einnig sleppa.
Uppskrift eftir Helgu Möggu