Skip to main content

Makríl Vefjur

Makríll er einn næringarríkasti fiskurinn, náttúrulega ríkur af omega – 3 fitusýrum.

Hér er mjög einfaldar vefjur með makríl sem hægt er að hafa í kvöldmatinn eða taka með sér í nesti hvert á land sem er.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu. Þú færð Stabbur makríll fæst til dæmis í Hagkaup.

Innihald:

  • vefjur
  • Stabbur makril með salsa
  • sýrður rjómi
  • edamame baunir
  • kál
  • kóríander (má sleppa)
  • rauðlaukur (má sleppa)
  • límóna

Þú byrjar á því að skera niður grænmeti sem þú vilt setja í vefjurnar þínar. Þú smyrð vefjurnar með sýrðum rjóma, ég var með litlar vefjur en það má líka nota stórar. Því næst setur þú grænmeti í vefjurnar og setur svo makrílinn þar yfir. Gott að toppa með kóríander og límónu safa.

Einfaldara gerist það ekki.

Uppskrift eftir Helgu Möggu