Bernaise borgarar og kótilettuveisla

Hamborgarar
- 4 stk hamborgari + brauð
- 1 pk Toro bernaise sósa
- Bezt á borgarann krydd
- 4 ostsneiðar
- Kál, tómatar, paprika, rauðlaukur, súrar gúrkur
- Útbúið bernaise sósu samkvæmt leiðbeiningum á pakka og leggið til hliðar, hrærið reglulega í henni á meðan annað er útbúið.
- Grillið hamborgara, kryddið með vel af Bezt á borgarann og setjið ostsneið á hvert kjöt.
- Skerið grænmetið niður og raðið að lokum á borgarann ásamt vel af bernaise sósu.

Kótilettur
- Lambakótilettur
- Bezt á lambið krydd
- Franskar og bernaise sósa
- Hitið franskar í ofninum á meðan borgarar og kótilettur er eldað.
- Kryddið kótiletturnar með vel af Bezt á lambið kryddinu og grillið á vel heitu grilli.
- Berið fram með frönskum og bernaise sósu.

Uppskrift efir Gotterí og gersemar



