
Fyrir 2 – tekur um 20 mínútur
Hráefni
- 4 msk hunang
- 2 msk sojasósa
- 2 msk Go Tan sriracha sósa
- 1–2 tsk fínt saxað engifer
- 3 tsk fínt saxaður hvítlaukur
- graslaukur (til skrauts)
- 1 kg kjúklingalæri (eða drumsticks)
Aðferð
- Blandaðu saman hunangi, sojasósu, sriracha, engiferi og hvítlauk í skál.
- Steiktu kjúklingalærin á meðalhita þar til þau verða gullinbrún.
- Lækkaðu hitann og helltu umfram fitu af pönnunni.
- Bættu sósublöndunni út á pönnuna.
- Hækkaðu hitann aftur svo sósan sjóði og þykkni. Hrærðu reglulega þannig að sósan loði vel utan um kjúklinginn. Haltu áfram þar til sósan er orðin þykk og glansandi.
- Stráðu graslauk yfir til skrauts áður en þú berð fram.
Uppskrift eftir Go Tan


