![]()
Púrrulauks ídýfa
1 dós sýrður rjómi
½ pk Púrrulaukssúpa frá Toro
2-3 msk ab mjólk / súrmjólk
Blandið öllu saman og hrærið vel, bætið ab mjólk í eftir því hversu þykka ídýfu þið viljið.
Setjið í skál eða box með loki og gott er að geyma ídýfuna í kæli í minnst 2-3 klst, til að leyfa henni að taka sig.
Berið fram með snakki, saltstöngum, niðurskornu grænmeti líkt og gúrku, gulrót, brokkolí, blómkáli eða papriku eða með grillmatnum.
![]()
Uppskrift frá Döðlur og smjör
