Ofurauðveldir Cinnabon-snúðar
Hráefni
Snúðar:
- Einn pakka af Toro Hveteboller
- 3 dl volgt vatn
- 50 gr bráðið smjör
Fylling:
- 75 gr mjúkt smjör eða Ljóma
- 2 og 1/2 msk kanill
- 1 bolli púðursykur
Krem ofan á:
- 1 pakki Toro ostakrem
- 125 gr rjómaostur
- 50 gr mjúkt smjör eða Ljóma
Aðferð
- Byrjið á að gera deigið
- Hellið úr pakkanum í hrærivélarskál og bætið við volgu vatni og bræddu smjöri
- Hnoðið alveg þangað til að deigið fer í hringi meðfram skálinni og festist ekki á krókinn, c.a 3-5 mínútur
- Setjið í gluggakistu með miðstöðvarofn undir, eða á hlýjan stað, og leyfið að hefast í klukkutíma
- Takið næst út rjómaost og smjör og leyfið að standa á borði meðan deigið hefast til að það verði mjúkt
- Gerið núna fyllinguna. Best er að mýkja smjörið ögn í örbylgju án þess að bræða það (eins og fimm sekúndur)
- Hrærið svo saman púðursykri, smjöri og kanil
- Þegar deigið er búið að hefast hitið þá ofninn á 180-190 C°blástur.
- Fletjið nú deigið út í þykkan ferning eins og 1-2 cm þykkan og 40 cm langan
- Smyrjið næst fyllingunnni á ferninginn og rúllið upp eins og þegar eru gerðir snúðar (ath það er mikil fylling og þannig á það að vera)
- Skerið svo hvern snúð í c.a 4 cm þykkan og raðið í eldfast mót og breiðið stykki yfir í eins og 10 mínútur
- Bakið svo í ofninum í c.a 15-18 mínútur, eða þar til orðið ljósbrúnt. Passið að baka ekki of dökka.
- Meðan Snúðarnir eru í ofninum er gott að gera ostakremið
- Þá er duftinu, smjöri og rjómaosti hrært saman þar til orðið kekkjalaust
- Takið svo snúðana úr ofninum og smyrjið öllu kreminu á þá heita
- Berið svo strax fram meðan þeir eru heitir, það er best
- Síðan er gott að hita afganga (ef einhverjir verða) í örbylgjunni


Punktar
Ef þið viljið gera stóra kanilsnúða eins og á bláa disknum, þá er deigið skorið aðeins þynnra og snúðum raðað á bökunarplötu. Látnir hefast þar undir stykki í 10 mínútur og bakaðir í 15 mínútur á 190 C°hita. Leyfið svo snúðunum að kólna áður en krem er sett á.

Uppskrift frá Paz



