Skip to main content

Einfalt og fljótlegt Tikka Masala

Hráefni

  • Einn pakka af Toro Tikka Masala grýtu
  • 1/2 græna papriku
  • 1/2 dós ananas + safann úr dósinni
  • 4 Kjúklingabringur
  • Kókósmjólk í dós (ekki fituskerta)

Aðferð

  1. Skerið bringurnar í gúllasbita
  2. saxið papríkuna smátt og ananasinn í helminga
  3. Setjið olíu á pönnu og steikið grænu papríkuna þar til hún er mjúk, ekki brúna hana
  4. Setjið svo bringurnar út á pönnuna með papríkunni og saltið smá. Steikið bara þar til þær verða hvítar (ekki steiktar alveg í gegn, verða þá þurar)
  5. Hellið næst duftinu út á og blandið við 4 dl af vatni og 1 dl af ananassafanum úr dósinni og 3,5 dl af kókósmjólkinni
  6. Setjið svo ananasinn út á og látið sjóða í 15-20 mínútur svo kjúllinn verði alveg til, því við steiktum hann ekki í gegn.

Uppskrift frá Paz