Skip to main content

vatnsdeigsbollur


Mokkabollur

Vatnsdeigsbollur uppskrift

Um 12 stykki

  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3 egg (160 g)
  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  1. Hitið ofninn í 180°C og klæðið tvær bökunarplötur/skúffur með bökunarpappír.
  2. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið.
  3. Pískið og vigtið eggin í skál og geymið.
  4. Bræðið smjörið í potti og hellið vatninu saman við, hrærið saman þar til fer að sjóða og smjörið er bráðið.
  5. Slökkvið þá á hellunni og blandið hveitiblöndunni saman við svo úr verði nokkurs konar smjörbolla.
  6. Færið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið með K-inu á lágum hraða þar til mesti hitinn er farinn úr deiginu.
  7. Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og blandið saman.
  8. Notið stóra ísskeið eða vel kúfaða matskeið til þess að móta bollurnar og bakið síðan í um 35 mínútur eða þar til þær verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn samt fyrr en í fyrsta lagi að 25 mínútnum liðnum.
  9. Kælið síðan áður en þið fyllið og skreytið.

Mokkafylling

  • 1 pk Royal búðingsduft með mokkabragði
  • 200 ml mjólk
  • 50 ml rjómi (óþeyttur)
  • 350 ml rjómi (léttþeyttur)
  1. Hellið mjólk og 50 ml af rjóma í skál og pískið búðingsduftið saman við.
  2. Kælið í um 10 mínútur og hrærið að minnsta kosti einu sinni í blöndunni á meðan hún er í kælinum.
  3. Vefjið næst léttþeytta rjómanum saman við búðinginn með sleikju
  4. Fyllið bollurnar með mokkablöndunni og skreytið síðan.

Samsetning og skreyting

  • 80 g dökkt súkkulaði
  • Flórsykur
    1. Bræðið súkkulaðið og „drisslið“ smá yfir lokið á hverri bollu.
    2. Leyfið súkkulaðinu að taka sig áður en þið sigtið örlítinn flórsykur yfir bollurnar.
    3. Kælið og njótið!

 

fylling í bollur

 

Uppskrift frá Gotterí og gersemar