Skip to main content

Mokka tiramisú

Ef þú ert að leita að einföldum og góðum eftirrétt fyrir páskana þá er þetta mokka tiramisú eitthvað fyrir þig. Fljótlegt, einfalt og gott.

Innihald í 6-8 skammta

  • 1 pakki Royal Mokka búðingsduft
  • 250 ml mjólk
  • 250 ml rjómi
  • lady fingers kex 1,5 pakkar
  • kakó
  • kaffi

Þú byrjar á að þeyta saman mjólk, rjóma og Royal mokka búðingsduft, setur svo blönduna í sprautupoka en það er einnig hægt að setja blönduna í skálarnar með skeið. Settu kaffi í skál og skerðu ladyfinger kexið í tvennt. Dýfðu kexinu í kaffið og raðaðu í hringlaga glös eða skálar. Það er einnig hægt að setja kexið í botninn á stóru fati og blönduna svo yfir.

Royal blöndunni er svo sprautað í miðjuna á glasinu eins og rós eða sett í miðjuna með skeið.

Skreytt með kakói. Gott að geyma í kæli í um 1 klst áður en rétturinn er borinn fram.

Þessi uppskrift dugir í 6-8 glös/skálar, en það fer einnig eftir stærðinni á skálunum.

Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig Helga Magga bjó réttinn til.
Uppskrift eftir Helgu Möggu