Skip to main content


Kjúklinganúðlur uppskrift

Fyrir 4-5 manns

  • 1 pakki Go-tan lífrænar eggjanúðlur
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ kúrbítur
  • 1 paprika
  • 4-5 egg
  • 2-3 eldaðar kjúklingabringur (ég notaði sous vide bringur í hvítlauk)
  • 1 flaska Go-tan Teriyaki woksósa
  • ½ flaska Go-tan Ketjap Sesam woksósa
  • Saxaðar jarðhnetur
  • Saxað kóríander
  • Saxaður vorlaukur
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar – Kryddhúsið

Aðferð:

  1. Sjóðið eggin í 6-8 mínútur (eftir smekk).
  2. Hitið vatn í potti að suðu, setjið núðlurnar í og sjóðið í um 5 mínútur. Setjið þær síðan undir kalt vatn áður en þið blandið þeim saman við grænmetið á pönnunni.
  3. Skerið niður eldaðan kjúkling, papriku og kúrbít á meðan núðlur og egg eldast.
  4. Steikið grænmetið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk, t.d. salt, pipar eða rótargrænmetiskrydd frá Kryddhúsinu. Rífið hvítlaukinn á pönnuna í lokin.
  5. Bætið kjúklingnum saman við grænmetið þegar það er búið að mýkjast og hellið báðum woksósunum saman við. Hitið og blandið saman.
  6. Næst fara núðlurnar á pönnuna og blandið öllu saman.
  7. Skammtið á diska og toppið með jarðhnetum, kóríander, vorlauk og eggi.

Njótið!

Uppskrift frá Gotterí og gersemum