Skip to main content

Fyllt kalkúnarbringa

Eldunartími: 75 mínútur
Ofnhiti: 180°C
Magn: 2 kalkúnabringur

Hráefni – kalkúnafylling

  • 200 g sveppir
  • 1 laukur
  • 40 g smjör
  • 200 g beikon
  • 100 g fínt brauð (5 sneiðar)
  • 1 grænt epli
  • 50 g heslihnetur
  • 1 hnefi steinselja
  • 2 msk Bezt á kalkún krydd
  • Salt og pipar eftir smekk

Kalkúnabringur

  • 2 smjörsprautaðar kalkúnabringur (um 800 g hvor)
  • 2 msk Bezt á kalkún krydd
  • Eldunargarn

Aðferð

  1. Skerið sveppi og lauk gróft og steikið upp úr smjöri í 4–5 mínútur. Setjið í matvinnsluvél.
  2. Skerið beikonið niður og steikið þar til það er fulleldað.
  3. Fjarlægið skorpuna af brauðinu, afhýðið eplið og skerið í bita.
  4. Setjið brauð, epli, heslihnetur, steinselju, krydd og beikon í matvinnsluvélina ásamt sveppunum og lauknum. Blandið þar til fyllingin er vel samlöguð.
  5. Fletjið kalkúnabringurnar út og berjið þær varlega með kjöthamri eða kökukefli þar til þær eru nokkuð jafnar að þykkt.
  6. Dreifið fyllingunni jafnt á bringurnar, rúllið þeim upp og bindið með eldunargarni.
  7. Hitið ofninn í 180°C. Leggið bringurnar á grind með ofnskúffu undir og hellið um 500 ml af vatni í skúffuna.
  8. Eldið í um 60 mínútur eða þar til kjarnhiti nær 70°C samkvæmt uppskriftinni.
  9. Látið bringurnar hvíla, fjarlægið garnið og skerið í sneiðar áður en þær eru bornar fram.

Uppskrift eftir Döðlur og smjör