Skip to main content

Auðveldasta heimabakaða brauðið


Undirbúningur: 10 mínútur
Hefun: 1 klukkustund
Bökunartími: 40 mínútur
Heildartími: 1 klst. og 50 mínútur
Ofnhiti: 250°C

Hráefni

  • 1 tsk þurrger
  • 500 ml volgt vatn
  • 600 g hveiti
  • 1 msk salt
  • Sesamgaldur frá Pottagöldrum

Búnaður

  • Steypujárnspottur með loki

Aðferð

  1. Hrærið þurrgerinu saman við volgt vatn og látið standa í 5 mínútur.
  2. Setjið hveiti og salt í stóra skál og blandið saman.
  3. Hellið gerblöndunni út í og hrærið með sleif þar til allt hefur blandast vel.
  4. Breiðið hreint viskastykki yfir skálina og látið deigið hefast í 1 klukkustund.
  5. Þegar 30 mínútur eru eftir af hefuninni, hitið ofninn í 250°C og setjið steypujárnspottinn inn með lokinu á.
  6. Þegar deigið hefur hefast, takið heitan pottinn varlega úr ofninum og færið deigið yfir í hann.
  7. Stráið ríkulega af Sesamgaldri frá Pottagöldrum yfir brauðið.
  8. Setjið lokið á pottinn og bakið í 35 mínútur.
  9. Fjarlægið lokið og bakið áfram í 5 mínútur til að fá fallega og stökka skorpu.
  10. Takið brauðið úr pottinum og látið kólna á bökunargrind áður en það er skorið.

Berið fram með uppáhaldsálegginu ykkar.

 

Uppskrift eftir Tinnu Th