Skip to main content

Dásamlega góð sósa með kalkún:

Um páskana eldaði ég svo dásamlega kalkúnamáltíð að við ákváðum að hafa hana aftur núna í kvöld til að fagna sumardeginum fyrsta. Máltíðin var einföld en alveg stórgóð og með henni útbjó ég bestu sósu sem ég hef smakkað með kalkún, þó ég segi sjálf frá. Annað meðlæti var kartöflumúsfylling með beikoni og döðlum, rauðkál og rifsberjahlaup. Kalkúnabringuna kryddaði ég með vel af Bezt á flest kryddblöndu og þakti hana svo með beikoni. Við það varð bringan einstaklega safarík og bragðgóð. Við vorum alsæl með þetta og gætum ekki verið ánægðari með þessa byrjun á sumrinu.

  • 50 g smjör
  • Tvö bréf Kantarell – og sjampinjongasaus frá TORO
  • 3 dl kalkúnasoð (ég fékk það í Krónunni)
  • 4 dl rjómi
  • 2 kjúklingatengingar
  • 1/2 tsk Bezt á flest kryddblanda
  • 1/2 msk fljótandi kalkúnakraftur
  • 2-3 msk rifsberjahlaup
  • Smá hvítur pipar

 

Bræðið smjörið í potti. Bætið tveimur bréfum af kantarell- og sjampinjongsaus saman við og blandið vel saman. Setjið kalkúnasoð og rjóma saman við og látið suðuna koma upp. Setjið kjúklingateninga, kalkúnakraft, rifsberjahlaup, Bezt á flest kryddblöndu og hvítan pipar saman við þetta og látið malla í 15 mínútur. Smakkið til með rifsberjahlaupi og hvítum pipar.

Uppskrift eftir Andrea Gunnars