Bayonne skinka og hátíðarmeðlæti

Fyrir 4-6 manns
Bayonne skinka uppskrift
- Um 1,7 kg Bayonne skinka
- Gljái (sjá uppskrift að neðan)
- 1 l vatn
- Hitið ofninn í 150°C og setjið 1 l af vatni í ofnskúffu neðst í ofninum.
- Takið netið af skinkunni og setjið hana á ofngrind, penslið 1 x með gljáanum. Stingið kjöthitamæli inn í hana miðja og komið grindinni fyrir í ofninum fyrir ofan skúffuna með vatninu. Penslið 1-2 x á skinkuna á meðan hún er í ofninum.
- Eldið skinkuna með þessum hætti þar til kjarnhiti sýnir um 55°C og hækkið þá hitann á ofninum í 210°C og penslið aftur eina lokaumferð með gljáa. Eldið þar til kjarnhiti sýnir 67°C og leyfið þá skinkunni að standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en hún er skorin í sneiðar.
- Ef þið eigið ekki kjöthitamæli er gott að miða eldunartíma við 45 mín til klukkustund á hvert kíló.
Gljái uppskrift
- 150 g púðursykur
- 1 msk. dijon honey sinnep
- 1 msk. tómatsósa
- 1 msk. bbq sósa
- 50 ml rjómi
- Bræðið allt saman í potti, leyfið að bubbla stutta stund og slökkvið svo á hellunni.
- Penslið á skinkuna áður og á meðan hún er í ofninum og nýtið einnig í sósuna.

Sósa uppskrift
- ½ rauðlaukur
- 40 g smjör
- 1 pakki TORO steikarsósa
- 1 pakki TORO rauðvínssósa
- 400 ml rjómi
- 350 ml vatn
- 3 msk. gljái (sjá uppskrift að ofan)
- 1 msk. kjötkraftur
- ¼ tsk. Cheyenne pipar
- Salt og pipar eftir smekk
- Skerið laukinn smátt niður og steikið upp úr smjöri þar til hann mýkist.
- Bætið þá rjóma og vatni í pottinn og pískið bæði súpubréfin saman við.
- Setjið gljáa og kraft saman við og smakkið til með kryddum.

Rósakálsgratín
- 1 poki ferskt rósakál
- ½ laukur
- 2 hvítlauksrif rifin
- 20 g smjör
- 1 msk. Bezt á allt krydd
- 1 tsk. soyasósa
- 100 ml rjómi
- 50 g Primadonna ostur
- Snyrtið rósakálið og skerið til helminga.
- Sjóðið í um 7 mínútur og hellið vatninu þá af.
- Steikið lauk og hvítlauk upp úr smjöri þar til mýkist og bætið þá rósakálinu á pönnuna.
- Kryddið með Bezt á allt og soyasósu, hellið rjómanum yfir og leyfið aðeins að malla.
- Setjið þá í eldfast mót og rífið Primadonnu ost yfir.
- Bakið við 200°C í um 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og fer aðeins að gyllast.

Ávaxtasalat
- 2 gul epli
- 150 g jarðarber
- ½ banani
- 40 g saxað suðusúkkulaði
- 40 g saxaðar pekanhnetur
- 250 ml þeyttur rjómi
- Flysjið og skerið eplin smátt niður ásamt jarðarberjum og banana.
- Blandið suðusúkkulaði og pekanhnetum saman við og loks þeytta rjómanum með sleikju.

Karamellukartöflur
- Um 900 g kartöflur
- 200 g sykur
- 30 g smjör
- 50 ml rjómi
- Setjið sykurinn á pönnu við háan hita.
- Þegar hann byrjar að leysast upp þarf að lækka hitann, setja smjörið saman við og hræra vel saman.
- Næst má setja rjómann saman við og leyfa blöndunni aðeins að „bubbla“ og hella kartöflunum á pönnuna og velta upp úr karamellunni.


Uppskrift eftir Gotterí og gersemar



