Skip to main content

Pumpkin Spice Pönnukökur


Þessar dásamlega mjúku og góðu pumpkin spice-pönnukökur eru algjör haustdraumur!

Pönnukökurnar eru gerðar úr Ljúffengu pönnukökuþurrefnablöndunni minni sem gerir baksturinn einstaklega einfaldan. Þú ffinnur hana í Krónunni. Ég bæti pumpkin spice-kryddblöndu og rjómasúkkulaðidropum út í deigið sem gefur pönnukökunum dásamlegt kryddbragð og litla bráðnaða súkkulaðibita í hverjum munnbita.

Pumpkin spice er kryddblanda sem inniheldur yfirleitt kanil, engifer, múskat og fleiri hlýleg krydd sem minna svo mikið á haustið. Kryddið passar einstaklega vel með sætu rjómasúkkulaðinu og þegar pönnukökurnar eru bornar fram volgar með þeyttum rjóma og hlynsírópi verður útkoman alveg ómótstæðileg.

Þetta eru fullkomnar pönnukökur fyrir kósý helgarmorgna, brunch með fjölskyldunni eða þegar mann langar einfaldlega að gera aðeins extra vel við sig.

Einfaldar í útbúningi, mjúkar og stútfullar af góðu haustbragði!

Pumpkin spice-pönnukökur

Uppskriftin gefur um 10 pönnukökur | Tími: um 15 mínútur

Hráefni

  • 1 pakki Ljúffengrar pönnukökuþurrefnablöndu frá Lindu Ben
  • 1 egg
  • 60 g smjör
  • 2½ dl mjólk
  • 2 tsk. pumpkin spice-kryddblanda
  • 75 g rjómasúkkulaðidropar

Til að bera fram

  • Hlynsíróp
  • Þeyttur rjómi

Aðferð

  1. Bræðið smjörið á pönnunni sem þið ætlið að steikja pönnukökurnar á.
  2. Setjið pönnukökuþurrefnablönduna í skál ásamt eggi, bræddu smjöri, mjólk og pumpkin spice-kryddblöndu. Hrærið þar til deigið hefur blandast vel saman.
  3. Bætið súkkulaðidropunum út í og blandið þeim varlega saman við deigið.
  4. Hitið pönnuna yfir meðalhita og steikið um 1 dl af deigi í einu. Snúið pönnukökunum við þegar loftbólur myndast á yfirborðinu og kantarnir hafa tekið sig. Steikið þar til þær eru fallega gylltar og bakaðar í gegn.
  5. Berið pönnukökurnar fram volgar með þeyttum rjóma og hlynsírópi.

Byggt á uppskrift Lindu Ben.