Marineraðar lambalundir

Hráefni
- Lambalundir magn eftir fjölda manns en reikna með 250-300 gr fyrir hverja persónu
- 1 dl heitt vatn
- 2 tsk sætt sinnep
- 3 msk sojasósa
- 1 1/2 msk púðursykur
- Bezt á Lambið krydd (ekki sett í marineringuna)
Aðferð
- Sjóðið vatnið
- Hellið svo öllu saman í skál (nema kryddinu) og hrærið vel
- Leyfið að kólna aðeins niður og setjið þá lambalundir eða það kjöt sem þið viljið marinera út í
- Best er að láta þetta marinerast yfir nótt eða frá morgni til kvölds, ekki styttra en 4 tíma
- Þegar elda á lambið takið það þá úr marineringunni og kryddið létt yfir með Bezt á lambið kryddinu
- Rúllið lundunum upp og festið þær með tannstöngli.
- Steikið þær síðan á pönnu úr ósöltu smjöri (grænar umbúðir) í 2 1/2 mínútur á hvorri hlið.
- Setjið að lokum inn í 90°-100 C° heitan ofn (undir yfir hita) í 5-7 mínútur
- Hægt er að taka tannstönglana úr áður en lundirnar eru bornar fram því þær haldast upprúllaðar eftir steikinguna.
Punktar
Með því að elda lundirnar með þessum hætti verða þær einstaklega ljúffengar og ótrúlega safaríkar þar sem þær missa minni safa heldur en ef þær eru steiktar með venjulegum hætti.
Uppskrift eftir Maríu Gomez




