Alvöru Royalista-kaka

Botninn
- 4 egg
- 125 g sykur
- 1 tsk. vanilluessens
- 160 g hveiti
- 40 g kartöflumjöl
- 1 tsk. Royal lyftiduft
Á milli
- 200 g frosin jarðarber
- 400 ml rjómi
- 6 msk. Royal-jarðarberja- eða vanillubúðingsduft
- 350 g fersk jarðarber
Ofan á
- 150 g hvítt súkkulaði
- 300 ml rjómi
- 3 msk. Royal-vanillubúðingur
- 350 g fersk jarðarber
- 25 g pistasíuhnetur (má sleppa)
Aðferð:
Ég byrjaði á að baka ósköp hefðbundna tertubotna – eða botn, því að ég bakaði einn en klauf hann svo í sundur; það má líka baka þetta í tveimur formum. Alla vega, ég hitaði ofninn í 190°C. Smurði meðalstórt smelluform, klippti út hring úr bökunarpappír og setti á botninn. Svo tók ég fjögur egg og braut þau í hrærivélarskálina, bætti við 125 g af sykri og 1 tsk. af vanilluessens og þeytti þetta mjög vel saman. Svo vigtaði ég 160 g af hveiti og 40 g af kartöflumjöli, sigtaði þetta yfir eggjahræruna ásamt 1 tsk. af lyftidufti, blandaði því gætilega saman við með sleikju, setti deigið strax í formið og bakaði í um 20 mínútur. Ég lét botninn kólna á grind og klauf hann svo sundur í tvo botna.
Þá var það fyllingin: Ég byrjaði á að taka 200 g af frosnum jarðarberjum, lét þau hálfþiðna og maukaði þau svo. Þeytti 400 ml af rjóma og þeytti 6 msk. af Royal-búðingsdufti saman við (jarðarberja- eða vanillu-).
Svo blandaði ég berjamaukinu saman við með sleikju (eða með því að láta hrærivélina ganga á minnsta hraða).
Ég smurði svo jarðarberjarjómanum á neðri kökubotninn, dreifði 350 g af ferskum jarðarberjum yfir …
… og svo lagði ég hinn botninn ofan á.
Og þá það sem fór ofan á tertuna: Ég bræddi 125 g af hvítu súkkulaði í vatnsbaði með svona 50 ml af rjóma og lét það kólna dálítið. Stífþeytti svo 250 ml af rjóma með 3 msk. af Royal-vanillubúðingsdufti og blandaði hvíta súkkulaðinu saman við með sleikju.
Ég smurði svo rjómanum á efri botninn, raðaði 350 g af jarðarberjum ofan á og saxaði 25 g af hvítu súkkulaði og 25 g af pistasíum (en þeim má sleppa) og stráði yfir.
Uppskrift eftir Nönnu Rögnvaldar


