Gullið spínat og tómata dhal
-
1 bolli rauðar linsubaunir
-
2 bollar vatn
-
2 handfylli ferskt spínat eða 2 teningar frosið spínat
-
2 handfylli ferskt grænkál eða 2 teningar frosið grænkál
-
Handfylli af kirsuberjatómötum, skornir í litla bita
-
1 grænmetisteningur
-
1 tsk. Gull kryddblanda
-
1 tsk. garam masala
-
Salt
-
Pipar
Setjið allt í pott og látið malla við vægan hita í 20 mínútur; hrærið af og til. Setjið í skálar og dreifið ríkulega söxuðu kóríander og ristuðum kókosflögum yfir ásamt nokkrum chili-flögum. Berið fram með sítrónubát.
Einstaklega ljúffengur og fljótlegur, næringarríkur pottréttur sem hitar manni inn að beini.

Uppskrift eftir Jönu

