Skip to main content

ree

Innihald fyrir fjóra:

1 bréf Mexikansk tomatsuppe frá Toro

800 ml vatn

2 dl mjólk eða rjómi

2 kjúklingabringur (má sleppa)

 

Ídýfan:

2 dl kotasæla

1/2 dl púrrulaukssúpa

 

Það sem ég hafði með súpunni:

nachos

sýrður rjómi

ferskur kóríander

niðurskorin paprika

 

Ég byrjaði á því að grilla kjúklinginn. Á meðan hellti ég svo vatni og mjólk í pott ásamt Toro mexíkósúpu bréfinu. Blandaði þessu saman og hitaði við miðlungs hita.

 

Ég bjó svo til ídýfuna með því að banda saman kotasælu og púrrulaukssúpu.

Ég skar svo niður grillaða kjúklinginn og blandaði honum út í súpuna.

 

Á hverja súpuskál setti ég svo niðurskorna papriku, sýrðan rjóma og kóríander. En til hliðar var ég með nachos og púrrulauks ídýfuna.

Uppskrift frá  Helgu Möggu

Smelltu hértil þess að sjá TikTok myndband af því hvernig hún bjó réttinn til.