Skip to main content

ree

Brauðstangir

Innihald:

Toro pizzadeig

3 dl vatn

1/2 dl olía

brauðstangakrydd frá Kryddhúsinu

olía til penslunar eða hvítlaukssmjör inní.

olía eða egg til að pensla brauðstangirnar

Aðferð:

Innihaldinu úr pokanum er blandað saman við vatnið og olíuna, hrært saman í hrærivél eða í höndunum. Fínt að leyfa deiginu að standa í smá stund og hefast en ef þú hefur ekki tíma í það er það allt í góðu lagi.

Deiginu er skipt í tvennt og flatt út eins og kassalaga pizzu, penslað inní með olíu eða hvítlaukssmjöri. Brauðstangarkryddið sett yfir allt og deigið svo flett yfir svo þetta verði að stórri samloku. Skorið í 10 – 12 ræmur. Snúið upp á ræmurnar og þær settar á bökunarplötu.

Það sama gert við hinn helminginn af deiginu.

Gott að pensla brauðstangirnar með olíu eða eggi. Brauðstangirnar eru bakaðar við 180 gráður í 13 – 15 mínútur.

Uppskrift frá Helgu Möggu

Smelltu hértil þess að sjá TikTok myndband af því hvernig hún bjó þennan rétt til.