Kjöt í karrí
Fyrir um 6 manns
Súpukjöt eldun
- Um 2 kg súpukjöt
- 1 msk. salt
- ½ laukur
- Skolið kjötbitana vel og setjið í stóran pott.
- Hellið köldu vatni yfir og bætið salti og lauk saman við.
- Hitið að suðu og lækkið þá hitann og leyfið að malla í um 1,5 klst.
- Undirbúið annað á meðan (sjóðið kartöflur, hrísgrjón og útbúið sósuna).
Karrísósa uppskrift
- ½ laukur
- 50 g smjör
- 700 ml lambasoð (úr pottinum)
- 300 ml rjómi
- 2 pk af TORO karrísósu
- 1 tsk. soyasósa
- Salt og pipar eftir smekk
- Saxið laukinn smátt og steikið upp úr smjöri þar til hann mýkist.
- Hellið kjötsoði úr pottinum með súpukjötinu í gegnum sigti yfir laukinn.
- Pískið næst TORO karrísósunum saman við og bætið síðan rjómanum saman við.
- Hrærið vel og kryddið síðan eftir smekk með soya, salti og pipar.
Annað meðlæti
- Soðnar kartöflur
- Soðin hrísgrjón

Uppskrift frá Gotterí og gersemar




