Kjötbollur með púrrulaukssúpu
Innihald:
500 g nautahakk
1 dl púrrulaukssúpu duft frá Toro
60 g brauðraspur
2 egg
150 g kotasæla
1 tsk salt
Vefjur
Sósan:
300 g kotasæla
restin af púrrulaukssúpunni úr pokanum
Blandið innihaldsefnunum saman í skál með höndunum eða í hrærivél. Mótið litlar bollur, setjið á bökunarplötu. Hitið við 190 gráður í 25-30 mínútur.
Búið til sósuna á meðan bollurnar eru í ofninum og skerið niður grænmetið.
Sósan sett á vefju ásamt grænmeti, 2-3 bollur settar inn í vefjuna og henni lokað.
Uppskrift frá Helgu Möggu
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig hún bjó bollurnar til.




