
Ljúffeng tælensk kókos blómkálssúpa
- 1 meðalstór laukur, saxaður í teninga
- 3 hvítlauksrif, fínt söxuð
- 2,5 cm biti af engifer, fínt saxað
- 1 msk grænt taílenskt karrýmauk
- 2 tsk cumin @kryddhusið
- 1 stórt blómkálshöfuð, brotið í blóm eða 4 bollar frosið
- 1 liter grænmetissoð
- 1 ferna/ dós af kókosmjólk go-tan
- 1 tsk kókosolía
- Salt, eftir þörfum
- Safi úr límónu
- Saxað kóríander, til skrauts
Aðferð:
-
Byrjið á að hita kókosolíu í stórum potti yfir meðalhita.
-
Þegar olían er heit, bætið við söxuðum lauk, pressuðum hvítlauk og rifnum engifer. Steikið blönduna í um það bil 1 mínútu þar til laukurinn byrjar að verða ljósbrúnn og hvítlaukurinn og engiferið eru ilmandi.
-
Bætið karrýmauki og cumin út í pottinn. Eldið í 30 sekúndur í viðbót og hrærið stöðugt til að blanda kryddunum saman og leyfa bragðinu að þróast.
-
Setjið blómkálið í pottinn og hellið síðan soðinu yfir.
-
Lokið og eldið í um 10 mínútur þar til blómkálið er orðið meyrt.
-
Bætið kókosmjólkinni út í og haldið áfram að elda í 5-10 mínútur í viðbót.
-
Takið pottinn af hitanum og notið töfrasprota til að mauka súpuna þar til hún er silkimjúk. Smakkið súpuna og kryddið með salti ef þarf.
-
Toppið með kóríander og chili olíu

Uppskrift frá Jönu


