Kjúklinganúðlur uppskrift
Fyrir 4-5 manns
- 1 pakki Go-tan lífrænar eggjanúðlur
- 2 hvítlauksrif
- ½ kúrbítur
- 1 paprika
- 4-5 egg
- 2-3 eldaðar kjúklingabringur (ég notaði sous vide bringur í hvítlauk)
- 1 flaska Go-tan Teriyaki woksósa
- ½ flaska Go-tan Ketjap Sesam woksósa
- Saxaðar jarðhnetur
- Saxað kóríander
- Saxaður vorlaukur
- Ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar – Kryddhúsið

Aðferð:
- Sjóðið eggin í 6-8 mínútur (eftir smekk).
- Hitið vatn í potti að suðu, setjið núðlurnar í og sjóðið í um 5 mínútur. Setjið þær síðan undir kalt vatn áður en þið blandið þeim saman við grænmetið á pönnunni.
- Skerið niður eldaðan kjúkling, papriku og kúrbít á meðan núðlur og egg eldast.
- Steikið grænmetið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk, t.d. salt, pipar eða rótargrænmetiskrydd frá Kryddhúsinu. Rífið hvítlaukinn á pönnuna í lokin.
- Bætið kjúklingnum saman við grænmetið þegar það er búið að mýkjast og hellið báðum woksósunum saman við. Hitið og blandið saman.
- Næst fara núðlurnar á pönnuna og blandið öllu saman.
- Skammtið á diska og toppið með jarðhnetum, kóríander, vorlauk og eggi.
Njótið!

Uppskrift frá Gotterí og gersemum




