Skip to main content

ree

Tikka masala

Innihald:

1 bréf Tikka masala kyllinggryte frá Toro

3 – 4 kjúklingabringur (ég var með 800 g)

1 msk olía

rjómi eða mjólk 200 ml í sósuna

Jógúrtsósa:

150 g grísk jógúrt

safi úr hálfri sítrónu

1 hvítlauksrif rifið

salt, pipar og kúmen um hálf tsk af hverju kryddi

Þú byrjar á því að skera kjúklinginn í bita og steikja hann á pönnu ásamt því sem hrísgrjónin eru hituð. Á pakkanum segir 500 g kjúklingur en ég var með mun meira magn og sósan dugði vel fyrir meira magn.

Á meðan kjúklingurinn er að steikjast er tilvalið að útbúa jógúrsósuna. Öllum innihaldsefnunum er blandað saman í skál.

Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann tekinn af pönnunni og sósan útbúin á sömu pönnu. Innihaldi pakkans hellt út á pönnuna ásamt vatni og mjólk eða rjóma, magnið er tiltekið á pakkanum. Það er hægt að nota hvaða mjólk sem er eða rjóma. Mér finnst best að nota það sem er til hverju sinni.

Þetta hitað á pönnunni í 3-5 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað, þá er kjúklingnum blandað saman við sósuna og rétturinn borinn fram.

Með þessu er tilvalið að hafa hrísgrjón, salat og jógúrtsósuna.

Uppskrift frá Helgu Möggu

Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig hún bjó réttinn til.