Skip to main content

Ostakaka frá Póllandi

Sernik ostakaka frá Póllandi

Botn og toppur

  • 250 g hveiti
  • 25 g bökunarkakó
  • 100 g sykur
  • ½ tsk. Royal lyftiduft
  • ¼ tsk. sjávarsalt, Kryddhúsið
  • 150 g smjör (kalt í teningum)
  • 1 eggjarauða
  • 50 g súrmjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  1. Blandið þurrefnunum fyrst saman og hellið þá restinni af hráefnunum saman við.
  2. Hnoðið saman í höndunum. Smjörið mýkist aðeins upp við það og hnoðið þar til þið náið að þjappa allt vel saman.
  3. Skiptið deiginu þá niður, c.a 2/3 og 1/3. Setjið báða hluta í plastfilmu og þann minni í frystinn (til að rífa ofan á toppinn síðar) og þann stærri í kæli í um 40 mínútur.
  4. Hitið þá ofninn í 180°C.
  5. Setjið bökunarpappír í botninn á 24-26 cm stóru springformi og spreyið næst með matarolíuspreyi.
  6. Takið deigið úr kælinum, linið það aðeins upp með því að hnoða það og þjappið því næst yfir botninn og örlítið upp á hliðarnar.
  7. Bakið í 15 mínútur og útbúið ostakökufyllinguna á meðan.

Ostakökufylling

  • 200 g smjör við stofuhita
  • 6 eggjarauður
  • 250 g sykur (tvískiptur)
  • 1 kg Twaróg ostur
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 1 msk. appelsínubörkur
  • 7 eggjahvítur
  • 40 g Royalbúðingur með vanillubragði
  • Þeytið saman smjör, eggjarauður og helminginn af sykrinum þar til létt og ljóst.
  • Setjið á meðan Twaróg ostinn í skál og hnoðið/jafnið aðeins í höndunum svo hann losni vel í sundur og verði jafnari.
  • Bætið honum ásamt vanilludropum og appelsínuberki saman við smjörblönduna, skafið vel niður á milli.
  • Þeytið eggjahvíturnar í annarri skál ásamt restinni af sykrinum þar til topparnir halda sér, bætið þá vanillubúðingsduftinu saman við og hrærið saman stutta stund í viðbót.
  • Vefjið til að byrja með um ¼ af eggjahvítublöndunni saman við ostablönduna með sleikju.
  • Bætið restinni síðan saman við í nokkrum skömmtum og blandið áfram varlega saman.
  • Hellið að lokum ostablöndunni yfir kexbotninn sem búið er að taka úr ofninum.
  • Rífið að lokum deigið sem er búið að vera í frystinum niður með grófu rifjárni og dreifið yfir ostakökufyllinguna.
  • Bakið í 70 mínútur og leyfið síðan að kólna í að minnsta kosti 3 klukkustundir áður en þið takið úr forminu.

ostakaka uppskrift

Uppskrift frá Gotterí og gersemar