
Partýbollur sem bregðast ekki
Hráefni
Bollur:
- 500 gr nautahakk
- 500 gr svína eða grísahakk
- 1 pakki púrrulauksúpa frá Toro
- 1,5 tsk sojasósa
Sósan á bollurnar:
- 1 dl chilitómatssósa
- 1 dl rifsberjahlaup
- 1 msk sojasósa
- 1 msk púðursykur
- 1 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt)
- 1 tsk timian þurrkað
- 1/2 dl sætt sinnep
- 1 msk kartöflumjöl
Ídýfa til að bera fram til hliðar með bollunum:
- 1 dós grísk jógúrt (320 gr)
- 1/2 dl mjólk
- 1 msk hlynsíróp
- 1 pakki púrrulaukssúpa frá Toro
Aðferð
Bollur:
- Blandið saman grísa og nautahakkinu varlega saman með höndunum, passið að hnoða ekki mikið
- setjið næst sojasósu út í og eins og 1/3 af púrrulaukssúpunni, blandið með höndunum og setjið svo restina af púrrlaukssúpunni smátt og smátt út í meðan þið hnoðið á milli.
- Reynið að hnoða sem minnst en samt þannig að súpan fari vel í allt kjötið
- Myndið svo litlar bollur á stærð við litla tyggjókúlu og raðið á ofnplötu með smjörpappa á
- Bakið í ofni við 200 C°blástur í 15 mínútur
Sósan á bollurnar:
- Hitið allt saman í potti nema kartöflumjölið og látið ná að suðu
- Þegar sósan byrjar að sjóða bætið þá kartöflumjölinu út í og hrærið stöðugt í á meðan þar til hún þykknar
- Takið svo bollurnar úr ofninum og hellið sósunni út á bollurnar og hrærið vel saman
Ídýfa:
- Hrærið saman jógúrtinni, mjólkinni og hlynsírópinu vel saman
- Hellið svo heilum pakka af Toro Púrrulaukssúpu út í og hrærið vel saman
- Leyfið að standa í ísskáp eins og í 30 mínútur en því lengur því betra
- Berið fram til hliðar við bollurnar
Punktar
Ef þið eruð með veislu er best að tvöfalda uppskriftina af bollunum og sósunni (ekki af hvítu sósunni samt). Hægt er að bera fram á pinnum eða bara á disk eins og þið sjáið hér að ofa.



Uppskrift frá Paz



