
Dúnmjúk skinkuhorn uppskrift
- 1 pk Toro Hveteboller bökunarduft
- 1 pk skinkumyrja
- 3 sneiðar smátt skorin skinka
- 8 ostsneiðar
- Egg til penslunar og sesamfræ
-
- Hnoðið bollumixið samkvæmt leiðbeiningum á pakka og hefið í 10 mínútur.
- Skiptið deiginu í tvo hluta og fletjið hvorn um sig út eins og hringlaga pizzu um 30-35 cm í þvermál.
- Skiptið hvorum hluta niður í 8 sneiðar með pizzaskera eða hníf (samtals 16 skinkuhorn).
- Skiptið skinkumyrju og skinku jafnt á milli og setjið hálfa ostsneið ofan á hverja sneið.
- Rúllið upp frá breiðari endanum, setjið viskastykki yfir og leyfið að hefast í um klukkustund.
- Penslið þá með eggi og stráið sesamfræum yfir og bakið við 215°C í um 10 mínútur eða þar til hornin fara að gyllast.


Uppskrift frá Gotterí og gersemar
