Skip to main content

Kryddkaka í jólabúningi; TORO kryddkökumix; kryddkaka með rjómaostakremi; jólakaka

Kryddkaka í jólabúningi

Kökubotnar

  • 3 x Toro kryddkökumix
  • 3 egg
  • 6 dl vatn
  • 300 g brætt smjör
  • 1 pk Royal vanillubúðingur
  • 2 tsk. kanill
  1. Hitið ofninn 170°C.
  2. Hrærið saman eggjum, vatni og bræddu smjöri.
  3. Bætið kökuduftinu saman við ásamt kanil og skafið niður á milli þar til blandan er slétt og fín.
  4. Að lokum fer Royal búðingsduftið saman við og aftur er blandað vel.
  5. Spreyið 3 x 20 cm form með matarolíuspreyi og skiptið deiginu niður á milli formanna.
  6. Bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.
  7. Kælið botnana vel og skerið þá ofan af þeim með kökuskera til að hafa þá alla jafna og slétta.

Krem

  • 200 g smjör við stofuhita
  • 150 g rjómaostur við stofuhita
  • 250 g Mascarpone ostur við stofuhita
  • 750 g flórsykur
  • 2 msk. mjólk
  • 2 tsk. vanilludropar
  • ¼ tsk. salt
  1. Þeytið saman smjör, rjómaost og Mascarpone ost þar til létt og ljóst.
  2. Setjið flórsykurinn saman við í nokkrum skömmtum ásamt mjólk, vanilludropum og salti.
  3. Hrærið þar til slétt og fallegt krem hefur myndast.
  4. Smyrjið um 1 cm þykku lagi á milli botnanna og á toppinn og rétt þekjið hliðarnar með kremi svo það sjáist vel í botnana í gegn.
  5. Skreytið og kælið þar til bera á kökuna fram.

Skraut

  • 120 ml vatn
  • 100 g sykur + 200 g til að rúlla upp úr (samtals 300 g)
  • Um 7 stilkar af ferskum rósmaríngreinum
  • 50-70 g fersk trönuber
  1. Hitið saman 100 g sykur og vatn að suðu og hrærið þar til sykurinn er uppleystur, takið þá af hellunni.
  2. Dýfið rósmaríngreinum í sykurlöginn, hristið hann aðeins af og leggið þær á bökunarpappír í um 15 mínútur.
  3. Því næst má setja trönuberin í pottinn og setja lok/viskastykki yfir og leyfið þeim að liggja í pottinum í um 15 mínútur.
  4. Takið þá trönuberin upp úr, hristið eins mikið af sykurleginum af þeim og þið getið og leggið á bökunarpappír í um 30 mínútur.
  5. Á meðan trönuberin hvíla má setja 200 g af sykri í grunna og víða skál og rúlla rósmaríngreinunum upp úr sykrinum og setja á nýjan hreinan bökunarpappír til þess að leyfa þeim að þorna.
  6. Þegar trönuberin hafa fengið að þorna í um 30 mínútur má einnig velta þeim upp úr sykrinum og færa yfir á nýjan bökunarpappír til að þorna.
  7. Það ætti að duga að leyfa þessu að liggja í um 15-30 mínútur og síðan nota til þess að skreyta kökuna eftir hentugleika.

Kryddkaka í jólabúningi; TORO kryddkökumix; kryddkaka með rjómaostakremi; jólakaka

 

Uppskrift frá Gotterí og gersemar