Skip to main content

hversdagsmatur

Stroganoff uppskrift

Fyrir 4-5 manns

  • 600 g ungnautafile (má líka vera sirlon/annað)
  • 250 g sveppir að eigin ósk
  • ½ laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 1 pk. TORO stroganoff gryte
  • 500 ml rjómi
  • 300 ml vatn
  • 1 msk. nautakraftur
  • 1 msk. timian
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 400 g pasta/tagliatelle
  • Smjör til steikingar
  • Bezt á nautið krydd
  1. Skerið kjötið niður í þunnar sneiðar, steikið upp úr smjöri þar til það brúnast á öllum hliðum og kryddið með Bezt á nautið kryddi, takið síðan af pönnunni.
  2. Bætið smjöri á hana að nýju og steikið nú sveppi og lauk þar til það fer að mýkjast, bætið þá rifnum hvítlauk saman við og steikið saman áfram stutta stund.
  3. Bætið nú vatni, rjóma og krafti á pönnuna og hrærið TORO stroganoff grýtuna saman við, blandið vel.
  4. Bragðbætið síðan með dijon sinnepi og fersku timian og berið fram með soðnu pasta/tagliatelle og góðu brauði.

 

TORO stroganoff

Uppskrift frá Gotterí og gersemar